Gilbert úrsmiður og Ófeigur gullsmiður fengu Njarðarskjöld og Freyjusóma
Mannlíf Menning og listir
Njarðarskjöldur og Freyjusómi eru veitt árlega sem viðurkenningar- og hvatningarverðlaun til verslana eða verslunareigenda í miðborginni fyrir góða þjónustu og ferskan andblæ í ferðaþjónustu. Í ár fékk Gilbert úrsmiður á Laugavegi Njarðarskjöldinn en Ófeigur gullsmiðja á Skólavörðustíg hlaut Freyjusómann.
Njarðarskjöldurinn er nú veittur í átjánda sinn en markmið verðlaunanna er að hvetja til bættrar og aukinnar verslunarþjónustu við ferðamenn í Reykjavík. Njarðarskjöldur er hvatningarverðlaun Reykjavíkurborgar, Miðborgarinnar okkar, Félags atvinnurekenda, Samtaka verslunar og þjónustu, Kaupmannasamtök Íslands, Global Blue á Íslandi og Tax Free Worldwide – Ísland.
Verslunin Gilbert úrsmiður fékk Njarðarskjöldinn fyrir framúrskarandi verslunarhætti árið 2013 en verslunin hefur skapað sér ákveðna sérstöðu hvað varðar sölu til erlendra ferðamanna og hefur salan hjá fyrirtækinu aukist jafnt og þétt á milli ára. Helsta vörumerki fyrirtækisins, JS Watch co. Reykjavík, sem eru íslensk armbandsúr, er innblásið af hinni síbreytilegu íslensku náttúru. Úrin byggja á íslensku hugviti og hönnun og eru sett saman í versluninni.
Njörður, sem skjöldurinn er kenndur við, var upphaflega frjósemisguð en síðar guð sæfarenda og sagður fésæll mjög. Sæfarendur þess tíma stunduðu gjarnan kaupskap og því við hæfi að kenna árleg hvatningarverðlaun til ferðamannaverslunar við guð siglinga og viðskipta.
Freyjusómi
Freyjusómi er hvatningarverðlaun Reykjavíkurborgar, Miðborgarinnar okkar, Félags atvinnurekenda, Samtaka verslunar og þjónustu, Kaupmannasamtök Íslands, Global Blue á Íslandi og Tax Free Worldwide – Ísland. Freyjusómi er viðurkenning sem nú er afhent í þriðja sinn en viðurkenningin var veitt
Ófeigi gullsmiðju, fyrir gott fordæmi og ferska nálgun í verslunarrekstri á ferðamannamarkaði árið 2013.
Nafn viðurkenningarinnar er sótt í norræna goðafræði líkt og nafn Njarðarskjaldarins. Freyja var gyðja frjósemi og þykir vel við hæfi að tengja nafn Freyju viðurkenningu þar sem fersk nálgun og frjó hugsun eru lykilviðmið.
Nánar um Njarðarskjöld og Freyjusóma.