Gerðubergi breytt fyrir framtíðina

Framkvæmdir Mannlíf

""

Í sumar verður unnið að endurbótum og  breytingum á menningarmiðstöðinni Gerðubergi í Breiðholti til að mæta framtíðarþörfum starfseminnar. Framkvæmdir verða boðnar út fljótlega og lýkur í september.

Gerðuberg er alhliða menningar- og mannlífsmiðstöð í Breiðholti og með breytingunum verður auðveldara að samhæfa starfsemina í húsinu og styrkja rekstrargrundvöll hennar. Breytingarnar eiga að bæta nýtingu á húsnæði, auka flæði milli bókasafns, veitingaaðstöðu, sem og sýninga- og fundarsala. Ásýnd hússins verður nútímalegri og fallegri, segir í greinargerð með breytingunum og aðstaða veitingaþjónustu batnar.

Opnara rými

Breytingar verða gerðar á efri hæð húsins og eru helstu breytingar þær að opnað verður frá kaffihúsi inn í bókasafnið og inn í sýningarrými í vesturálmu. Þá verður nýverandi eldhúsaðstöðu breytt í kaffi- og fundaraðstöðu, en eldhús og afgreiðsla flutt nær anddyri hússins. Tækifærið verður notað til að bæta lýsingu og hljóðvist í kaffihúsi.

Rýmið verður allt opnara og koma einfaldir glerveggir í stað veggja meðal annars í kringum stiga í anddyri.

Bækur og kaffi

Í kynningu á breytingunum fyrir borgarráði segir að unnið sé að úttekt á tækifærum í samruna Borgarbókasafns Reykjavíkur og  menningarmiðstöðvarinnar Gerðubergs. Styrkja á framtíðarhlutverk almenningsbókasafna sem menningarmiðja í hverfum borgarinnar með áherslu á fjölbreytta dagskrá árið um kring.  Vilji er til að bókmenntum og bókmenningu verði gert sérstaklega hátt undir höfði með viðburðum t.d. í samvinnu við Bókmenntaborgina og aðila sem henni tengjast. 

Veitingareksturinn í menningarmiðstöðinni er órjúfanlegur hluti starfseminggar og þjónar fjölbreyttum hópi gesta, sem sækja lista- og menningardagskrá, þjónustu bókasafnins eða félagslega afþreyingu og þjónustu. Heildar fjöldi gesta árið 2012 var rúmlega 258 þúsund.

Greiður aðgangur eldri borgara

Velferðarsvið rekur félagsstarf í húsinu og hafa eldri borgar og íbúar Fagrabergs beinan aðgang að Gerðubergi um sólskála sem tengir byggingar saman. Markmið er að eldri borgarar eigi greiðan aðgang að þeirri þjónustu sem menningarmiðstöð Gerðubergs býður uppá.



Tengt efni:

Kynning: Menningarmiðstöðin Gerðuberg í Breiðholti – Endurbætur og breytingar 2014