Börnin í Hólabrekkuskóla afhentu borgarstjóra sáttmála gegn einelti í morgun en 1500 börn, foreldrar og aðrir íbúar skrifuðu undir sáttmálann. Því næst var farið í göngu um hverfið þar sem hvatt var til vinsamlegra samskipta.
Afhending eineltissáttmálans var hápunktur á vináttuverkefni sem staðið hefur yfir alla vikuna í Hólabrekkuskóla. Nemendur í skólanum komu saman á sal og afhentu borgarstjóra undirskrifaðan sáttmála gegn einelti. Sáttmálinn var undirritaður af fólki úr nærsamfélagi skólans en nemendur fóru á stúfana og söfnuðu þeim saman. Að athöfn lokinni fóru nemendur skólans og börn úr þremur leikskólum í Hólahverfi í göngu um hverfið með mótmælaspjöld þar sem einelti verður mótmælt og „krafist“ betra samfélags. Gengið var með kröfuspjöld sem börnin höfðu útbúið og á þeim stóð m.a. „Við segjum NEI við einelti.“
Borgarstjóri þakkaði nemendum og starfsfólki í Hólabrekkuskóla fyrir þetta frábæra framtak og sagði gott að vita til þess að í Hólabrekkuskóla og öðrum skólum borgarinnar væri markvisst verið að vinna að vinsamlegu samfélagi. Það mætti gera með ýmsu móti en markmiðið væri sameiginlegt – alla daga ársins, ekki bara á degi gegn einelti - að rækta falleg samskipti og margbreytileikann.
Í vináttuviku hafa nemendur í Hólabrekkuskóla m.a. unnið með falleg og hlýleg orð og það sem vann samkeppnina um fallegasta orðið var orðið ást.