Leikskólinn Geislabaugur í Grafarholti fagnaði í dag tíu ára afmæli. Mikil gleði ríkti á leikskólalóðinni þegar Pollapönkarar birtust óvænt og tóku nokkur lög.
Afmælishátíðin í Geislabaugi hófst með söng allra leikskólabarnanna úti í sólinni en síðan hófust tónleikar með Pollapönk í boði foreldrafélagsins sem einnig gaf leikskólanum þrjár smásjár til að nota í vísindastarfinu. Þá kom Dagur B. Eggertsson borgarstjóri færandi hendi og tók gleðibylgjuna með börnunum. Hátíðinni lauk með því að Pollapönkarar tóku Euróvísionlagið og sungu börnin með fullum hálsi. Leikskólastjóri í Geislabaug er Ingibjörg Eyfells. Til hamingju Geislabaugur með árin tíu!