Ný skilti við Reykjavíkurtjörn um brauðgjafir voru sett upp í júní vegna andavarps æðarfugla, stokkanda, skúfanda og fleiri tegunda. Á skiltunum er fólk vinsamlegast beðið um að gefa fuglum ekki brauð yfir sumartímann, því brauðgjöf laðar að sílamáva.
Með auknum fjölda sílamáva við Tjörnina aukast líkurnar á að nýklaktir andarungar verði þeim að bráð. Endur hafa nóga fæðu á Tjörninni yfir sumartímann fyrir sig og ungana sína og því er ekki þörf á að fóðra þær. Mikið magn brauðs getur aukið lífræna mengun í Tjörninni ekki síst vegna þess að fjöldi fugla margfaldast þegar sílamávarnir mæta á Tjörnina. Drit úr fuglunum sem og brauðið sjálft stuðlar að lífrænu mengun.
Ný skilti hafa því verið sett upp við norðurenda Tjarnarinnar þar sem fram kemur á íslensku og ensku að ekki skuli gefa brauð yfir sumartímann, frá 15. maí til 15. ágúst. Skiltin eru staðsett fyrir framan Iðnó og meðfram Tjarnargötu og Fríkirkjuveg. Skiltin verða tekin niður í seinni part ágúst og ekki sett upp aftur fyrr en næsta vor.
Yfir haust og vetrarmánuði er óhætt að gefa fuglunum við Tjörnina og sérstaklega þegar kaldast er í veðri yfir háveturinn er slík aðstoð vel þegin enda getur fæðuframboð fyrir endur verið lítið á þeim árstíma.