Gasmengun frá eldgosinu líkleg á höfuðborgarsvæðinu

Heilbrigðiseftirlit

""

Samkvæmt Veðurstofu Íslands er líklegt að gasmengun geti í dag og á morgun borist frá eldgosinu í Holuhrauni til höfuðborgarinnar og er möguleiki á að mengunar verði vart um tíma.

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fylgist náið með eldsumbrotunum og áhrifum þeirra og gefur út viðvaranir ef þörf er á. Á vefsíðu Heilbrigðiseftirlitsins má sjá kort yfir staðsetningu loftgæðamælistöðva í Reykjavík en þar er hægt að fylgjast með styrk brennisteinsdíoxíðs og annarra efna. Liturinn er grænn ef styrkurinn er undir heilsuverndarmörkum fyrir öll efni en sýndur er hæsti styrkur efna á hverjum tíma. Til að fá ítarlegri upplýsingar um loftgæði í Reykjavík má velja mælistað á kortinu. Styrk brennisteinsdíoxíðs (SO2) er hægt að skoða í loftgæðafarstöð II, sem nú er staðsett við Norðlingabraut 5 og loftgæðamælistöðinni við Grensásveg.

Styrkur brennisteinsdíoxíðs í loftgæðamælistöð við Grundartanga var klukkan 14:45 um 800 míkrógrömm á rúmmetra og er líklegt að gildi geti farið í sambærilegan styrk í Reykjavík. Heilbrigðiseftirlitið vísar í töflu á heimasíðu Almannavarna http://avd.is/is/?p=826 en þar kemur fram að ef styrkur fer yfir 600 míkrógrömm á rúmmetra er fólki ráðlagt að forðast áreynslu utandyra.  Fólki sem er viðkvæmt í lungum er ráðlagt að fylgjast sérstaklega vel með.

http://reykjavik.is/loftgaedi