Fyrsti litháíski skólastjórinn í Reykjavík

Skóli og frístund

""

Starfsfólk í Háteigsskóla tók upp á þeirri tilbreytni í dag að skipta um starf í eina klukkustund. Sá sem fékk það hlutverk að vera skólastjóri var skólaliðinn Jonas Kaminskas. 



 

Nöfn starfsmanna voru í upphafi dags sett í hatt og síðan dró hver upp eitt nafn og þurfti  að sinna starfi viðkomanda frá kl. 9:10 - 10:10. Þannig dró Ásgeir Beinteinsson skólastjóri starf

Sigurðar tónmenntakennara upp úr hattinum og er ekki vitað betur en að hann hafi staðið sig vel í tónmenntatímanum með 3. bekk. Sá sem dró skólastjórastarfið var Jonas Kaminskas skólaliði og stóð hann sig ekki síður vel í starfinu í þessa klukkustund. 



Ekki þarf að taka fram að bæði starfsfólk og nemendur skólans höfðu afskaplega gaman af þessari nýbreytni sem hristi svolítið upp í hefðbundinni hlutverkaskipan.