Fyrsta tölublað ársins af Borgarsýn komið út

Umhverfi Skipulagsmál

""

Fyrsta tölublað ársins 2014 af Borgarsýn er komið út en blaðið kom fyrst út haustið 2011. Um er að ræða 8 tbl af Borgarsýn frá upphafi en blaðið kemur að jafnaði út 3-4 x á ári. Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar gefur kynningarritið út og er tilgangurinn með útgáfunni fyrst og fremst að upplýsa borgarbúa um þau verkefni sem eru efst á baugi umhverfis – og skipulagsmála hverju sinni.



Skoða Borgarsýn 8 tbl (PDF)

Í þetta sinn fjallar Borgarsýn m.a. um góða samvinnu  milli stjórnsýslu og borgarbúa, þar sem verkefnið Betri hverfi byggir t.a.m. á íbúalýðræði og að virkja almenning til þátttöku en hægt er að kjósa um allt að 20 hugmyndir í hverju hverfi. Þá má lesa um að Náttúruverndarnefnd Reykjavíkur réðst í ýmis verkefni á friðlýstu svæðunum með það að markmiði að varðveita verndargildi þeirra. Af öðrum góðum fréttum má nefna að samstarfsvettvangur um eflingu þekkingarsvæðis í Vatnsmýrinni og mótun áætlunar þar að lútandi var stofnaður í janúar með undirritun samkomulags sem Reykjavíkurborg, Háskóli Íslands, Háskólinn í Reykjavík, Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og Landspítalinn standa að. Sameiginlegt markmið allra er að móta metnaðarfulla áætlun um eflingu Vatnsmýrarinnar sem miðstöðvar þekkingargreina og nýsköpunar á Íslandi. Einnig er vert að geta þess að mikill hugur er í Reykvíkingum til að flokka heimilissorpið því allur pappír fer nú til endurvinnslu. Rúmlega 10 þúsund tonnum minna en áður féll til af blönduðu heimilissorpi í Reykjavík árið 2013 miðað við árið 2004. Það vitnar um mikinn hug og metnað borgarbúa í endurvinnslumálum.



Stúdentagarðar við Brautarholt lýsa vel því markmiði að skapa möguleika á meira mannlífi með því að þétta byggð. Ferðavenjur stúdenta verða vistvænar á þessu svæði því bæði er fljótlegt að hjóla í háskólana og einnig eru greiðar almenningssamgöngur við Hlemm. Skrifað er um þetta svæði í Borgarsýn að þessu sinni ásamt fjölmörgu öðru spennandi efni, t.d. verðlaunatillögu um viðbyggingu og útisundlaug við Sundhöll Reykjavíkur, hugmyndasamkeppni um Vogabyggð, skipulag Öskjuhlíðar og vistvæna byggð í Vesturbugt.



Umhverfis – og skipulagssvið Reykjavíkurborgar vonast til þess að Borgarsýn upplýsi borgarbúa um áherslur varðandi þróun og ásýnd borgarinnar hverju sinni enda viðfangsefni sem kemur öllum við. Kynningarritið Borgarsýn er gefið út í 500 eintökum og er einnig aðgengilegt á vefnum. Ritstjórar Borgarsýnar eru Björn Ingi Edvardsson, Elínborg Ragnarsdóttir, Gunnar Hersveinn og Halldóra Hrólfsdóttir.