Dr. Terry Hartig prófessor í umhverfissálfræði við Uppsalaháskóla mun flytja erindið Þétting byggðar: Stefna í úlfakreppu? (The densification dilemma: Stress, restoration and the pursuit of urban sustainability) á opnum fyrirlestri í Háskólanum í Reykjavík, fimmtudaginn 11. september nk. kl. 16.30 í stofu M105. Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Dr. Terry Hartig er einn afkastamesti og fremsti vísindamaður heims á sviði umhverfissálfræði. Hann hefur í meira en aldarfjórðung unnið að rannsóknum á heilsueflandi áhrifum náttúrunnar á fólk, og eftir hann liggur fjöldi rannsókna og greina.
Í fyrirlestrinum mun dr. Hartig ræða um tengsl lýðheilsu og þéttingar byggðar. Það er engum vafa undirorpið að kostir þéttari byggðar eru margir í umhverfislegum, félagslegum og efnahagslegum skilningi. Engu að síður hefur það sýnt sig að með skerðingu grænna svæða og torveldara aðgengi að þeim sem eftir standa, gengur þéttari byggð oft í berhögg við eflingu lýðheilsu. Sú spurning vaknar því með hvaða hætti samfélagið getur tryggt að íbúar í þéttbýli hafi greiðan aðgang að heilsubætandi, náttúrulegum svæðum, samfara aukinni þéttingu byggðar?
Reifaðar verða niðurstöður nýlegra rannsókna á sviði umhverfissálfræði sem sýna fram á heilsufarslegt mikilvægi þess að þéttbýlisbúa séu í nálægð við náttúru. Jafnframt verður fjallað um með hvaða hætti má tryggja og efla tengsl íbúa og náttúru þegar byggð er þétt.
Koma dr. Hartig til Íslands nú er í tengslum við rannsóknarverkefnið Cities that Sustain Us: Using Virtual Reality to Test the Restorative Potential of Future Urban Environments sem er samstarfsverkefni Gervigreindarseturs Háskólans í Reykjavík (CADIA) og Sálfræðideildar Uppsala-háskóla í Svíþjóð. Aðrir aðilar sem koma að verkefninu eru Reykjavíkurborg, Listaháskóli Íslands og Teiknistofa Guðrúnar Jónsdóttur.