Miklar breytingar hafa orðið við Borgartún undanfarin ár vegna uppbyggingar og nú síðast vegna endurgerðar götunnar. Umhverfis- og skipulagssvið boðaði að því tilefni til fundar við íbúa og hagsmunaaðila til að upplýsa um deiliskipulagsáætlanir, gatnaframkvæmdir og umferðartalningar. Hjálmar Sveinsson, formaður umhverfis– og skipulagsráðs, fór yfir sögu Borgartúns og greindi frá framtíðarsýn borgaryfirvalda um götuna.
Hjálmar sagði eftirsóknarvert að fjölga íbúum við Borgartúnið og nágrenni vegna þess að þá yrði það meira lifandi á kvöldin og um helgar. Hjálmar sagði að ekki hefði dregið úr bílaumferð í götunni þrátt fyrir kvartanir um hægari umferð og hann fagnaði því að hjólreiðafólki hefði stórlega fjölgað í Borgartúni því búið væri að breyta því í göturými fyrir margvíslega ferðamáta. „Strætó tekur vissulega pláss en hann tekur líka marga farþega og ber því að fá sitt rými,“ sagði Hjálmar.
Stefán Agnar Finnsson, yfirverkfræðingur, sagði að 950 metrar götunnar hefðu verið endurgerðir fyrir um 280 milljónir. Hann sagði að reiðhjólum hefði fjölgað um 440% á milli áranna 2013 og 2014 í Borgartúni og þakkaði það nýja hjólastígnum.
Ársæll Jóhannsson, tæknifræðingur, greindi frá bráðabirgðaniðurstöðum um lýsingu í Borgartúni. Þar segir að ljómi á akbraut teldist mjög góður og teldist lýsingin þar fullnægjandi. Hins vegar stendur til að bæta lýsingu á göngu- og hjólreiðastígum.
Borghildur Sturludóttir arkitekt fór yfir skipulagsáætlanir á svæðinu og sagði frá áherslum á svæðinu en gert er ráð fyrir skrifstofum, fjölþættri verslun og þjónustu og fjölgun íbúða. Svæðið er því mjög spennandi fyrir margra hluta sakir og hefur ásókn í húsnæði aukist verulega. Þá hefur veitingastöðum fjölgað mikið undanfarin ár.
Fundurinn var vel sóttur og þar urðu líflegar umræður um Borgartúnið. Vífill Oddsson tók til máls og sagði það hönnunarslys að taka af útskot af strætó í götunni, það þyrfti að lagfæra og hann dró í efa að auknar byggingarheimildir fyrir lóðina í Borgartúni 28a rúmist innan gildandi deiliskipulags Kirkjutúns.
Þuríður Einarsdóttir formaður húsfélagsins í Borgartún 30a og 30b sagði frá mótmælum íbúa varðandi breytingu á deiliskipulagi Kirkjutúns vegna lóðarinnar nr. 28a við Borgartún sem breyta á úr verslunar,- og þjónustubyggingu í íbúða- og þjónustubyggingu.
Skoðanir voru skiptar en eitt er víst að Borgartúnið gegnir sífellt stærra hlutverki í Reykjavík og er útvíkkun á miðborginni til austurs.