Um 130 manns mættu á Höfuð í bleyti í Gerðubergi 14. maí sl., nokkurs konar uppskeruhátíð frístundastarfsins á skóla- og frístundasviði, sem haldin er árlega.
Á fundinum voru flutt erindi og starfsfólk kynnti áhugaverð verkefni í frístundastarfinu.
Gísli Árni Eggertsson, skrifstofustjóri ÍTR, lagði upp með erindið Skipulegar frístundir – umgjörð sem skiptir máli fyrir menntun ungs fólks. Gísli Árni er mikill frumkvöðull og fræðimaður um frístundir og fjallaði erindið hans meðal annars um það hversu mikilvægt er að nýta þá möguleika sem skapast til menntunar þegar börn og unglingar sækja starf af eigin áhugahvöt í frítíma sínum.
Í kjölfar erindis hans voru kynningar á áhugaverðum verkefnum í frístundastarfi á vegum skóla- og frístundasviðs og hugmyndum um þróun fagstarfsins. Meðal þess sem kynnt var voru þau verkefni sem fengu þróunarstyrk frá skóla- og frístundaráði árið 2013 og verkefni sem hlutu hvatningaverðlaun skóla- og frístundaráð nú á dögunum.
Alls voru 23 verkefni kynnt og átti hver fundargestur kost á að fylgjast með fjórum þeirra. Mikil ánægja var meðal frístundastarfsfólks um Höfuð í bleyti að þessu sinni og ljóst er að það er mikil gróska í frístundastarfi SFS. Kærar þakkir til allra sem tóku þátt í þessum skemmtilega degi.