Freyja, Vinný Dögg og Krista sigruðu ljósmyndasamkeppni grunnskólanna
Umhverfi Skóli og frístund
Góð þátttaka var í ljósmyndakeppni grunnskólanema í Reykjavík sem efnt var til á Degi íslenskrar náttúru, þann 16. september síðastliðinn. Viðfangsefni keppninnar var „Náttúran í borginni – hið kunnuglega og hið óvænta“.
Ungir ljósmyndarar fengu það verkefni að finna hvernig hið manngerða og hin villta náttúra mætast í borgarlandslaginu því náttúran finnur sér oft samastað á sérkennilegum stöðum.
Nær 150 myndir bárust í keppnina en skilafrestur rann út 21. september. Ljósmyndirnar eru hvaðanæva úr borginni eins og ljósmyndararnir sem eru úr mörgum grunnskólum og á ýmsum aldri. Ljósmyndirnar sem bárust eru einstaklega fjölbreytilegar og skemmtilegar og sýna vel hugmyndaflug, frumlega nálgun og færni.
Fyrstu verðlaun:
Freyja Stígsdóttir úr 7. AS í Austurbæjarskóla
Í umsögn dómnefndar segir m.a.: „Freyja sendir inn tvær myndir sem báðar eiga það sameiginlegt að sýna óvænt líf og litríki í borgarlandslaginu. Annars vegar mynd af myndarlegri plöntu sem vex upp úr gangstéttinni og hins vegar gróður í óvenjulegu keri við veginn. Báðar myndirnar eru teknar af listfengi þar sem hugað er að sjónarhorni og litum.“
Önnur verðlaun:
Vinný Dögg Jónsdóttir 8. bekk Árbæjarskóla
„Vinný sendi inn frábæra 24 mynda seríu með fjölbreyttu myndefni og skemmtilegum sjónarhornum. Myndefnið er skondið og óvænt og þrælpassar í þema keppninnar um náttúruna á óvæntum stöðum“.
Þriðju verðlaun:
Krista Takefusa Kristófersdóttir úr 7. KM í Austurbæjarskóla
„Ljósmyndari hefur fundið skemmtilegt myndefni í bakgarði yfirgefins húss í borginni þar sem mætist hið manngerða og órækt náttúrunnar. Villtur og skapandi kraftur graffítis á veggjnum er í skemmtilegu samspili við villtan og óhirtan garð náttúrunnar. Sjónarhornið er óvænt og birtir okkur líf og litagleði.“
Fjórðu til fimmtu verðlaun hljóta:
Árni Jónsson, 3. bekk Selásskóla
„Árni sendi inn skemmtilega seríu af myndum sem sýna að hann hefur næmt auga fyrir hinu smáa og óvænta í umhverfinu. Mynd af sporinu í sandi og brotinni skel er sérstaklega skemmtileg og táknræn, maðurinn verður að fara með gát í náttúrunni sem er alls staðar í borgarlandinu“.
Freyja Hólm, Iker og Elín í 4. L Laugarnesskóla
„Einstaklega falleg og stílhrein ljósmynd af rósettum í Grasagarðinum. Þétt breiða af geislóttum rósettunum þar sem ein stór er umlukin mörgum minni kallar fram hugmyndir um hlýju og vernd og minnir okkur á að plöntur þurfa að þrauka harðan vetur áður en þær blómgast á ný“.
Verðlaunin voru afhent í Ráðhúsi Reykjavíkur föstudaginn 3. október og fengu þeir sem sigruðu í keppninni fallegar ljósmyndabækur í verðlaun.
Allar myndir keppninnar eru á Facebooksíðu Reykjavíkurborgar.
Í dómnefnd sátu:
Björn Ingvarsson – áhugaljósmyndari og deildarstjóri þjónustumiðstöðvar í Stórhöfða,
Edda Ýr Garðarsdóttir – myndlistarkennari Dalskóla,
Sigrún Björnsdóttir – upplýsingafulltrúi skóla- og frístundasviðs Reykjavíkur,
Snorri Sigurðsson – umsjónarmaður Reykjavík-iðandi af lífi.