Frestur til að sækja um dvöl í Villa Bergshyddan að renna út

Menning og listir

""

Frestur til að sækja um dvöl í Villa Bergshyddan í Stokkhólmi rennur út 1. febrúar nk.

Villa Bergshyddan er gestaíbúð í Stokkhólmi. Fólk sem starfar að listum og menningu og býr í einhverri höfuðborga Norðurlanda getur leigt íbúðina  í eina eða tvær vikur á ári hverju og er dvalargjald fyrir eina viku 800 sænskar krónur.

Bústaðurinn er þrjú herbergi og eldhús í endurbyggðu húsi frá 18. öld. Við dvölina gefst tækifæri til að kynnast Stokkhólmi og mynda tengsl með mögulega samvinnu í huga.



Umsóknareyðublöð má finna á heimasíðu Stokkhólms.  Í umsókn skal tilgreina tilgang dvalar og óskir um dvalartíma ásamt kynningu á umsækjanda.

Nánari upplýsingar veitir Auður Halldórsdóttir, verkefnastjóri á skrifstofu menningar- og ferðamálasviðs hjá Reykjavíkurborg, í gegnum síma 590 1520 og netfangið audur.halldorsdottir@reykjavik.is, og Hanan Haidari hjá menningarmálasviði Stokkhólmsborgar í gegnum netfangið hanan.haidari@stockholm.se.