Spáð er ofsaveðri í Reykjavík og á landinu öllu á morgun og því verður dagskránni sem vera átti á Austurvelli í tengslum við tendrun Ólsóartrésins frestað.
Að höfðu samráði við almannavarnir hefur því verið ákveðið að fresta fjölskylduskemmtun vegna tendrunar Óslóartrésins um viku. Ljósin verða tendruð þegar veðrinu slotar svo Óslóartréð prýði borgina í vikunni en fjölskylduskemmtunin mun fara fram næstu helgi.