Framhaldsskólanemar fá frítt í sund og á söfn

Skóli og frístund Íþróttir og útivist

""

Borgarráð samþykkti í morgun að allir framhaldsskólanemar fái aðgang að öllum sundstöðum og menningarstofnunum Reykjavíkurborgar á meðan verkfall framhaldsskólakennara stendur.   Ekki verður nein tímasetning á aðgangi og þurfa nemendur einungis að framvísa skólaskírteini.

Reykjavíkurborg rekur 7 sundlaugar og nánari upplýsingar um opnunartíma má nálgast á heimasíðu: http://reykjavik.is/sundlaugar.

Þá rekur borgin 8 söfn; þau eru Listasafn Reykjavíkur (Hafnarhús, Kjarvalsstaðir og Ásmundarsafn), Árbæjarsafn, Landnámssýningin í Aðalstræti, Sjóminjasafnið í Reykjavík, Ljósmyndasafn Reykjavíkur og Menningarmiðstöðin Gerðuberg, en þegar er gjaldfrjáls aðgangur að tveimur síðast töldu. Borgarbókasafn Reykjavíkur var undanskilið í tillögu borgarráðs enda er þar gjaldfrjáls aðgangur þótt bókasafnsskírteini, sem gildir í heilt ár, kosti 1700 kr. fyrir 18 ára og eldri.

Nemendur eru hvattir til að nýta tækifærið og njóta þess að geta tekið sundsprett og kynnt sér menninguna í borginni sér að kostnaðarlausu.