Frambjóðendafundur Íbúasamtakanna Betra Breiðholts

""

Fundur fyrir íbúa í Breiðholti með frambjóðendum til borgarstjórnarkosninga verður haldinn í Gerðubergi miðvikudaginn 9. apríl kl. 19:30. Fundurinn verður sýndur beint á netinu fyrir þá sem komast ekki og er slóðin netsamfelag.is.

Íbúasamtökin Betra Breiðholt hafa staðið fyrir fundi fyrir kosningar síðan samtökin voru stofnuð 2006. Það er fundur fyrir kosningar til Alþingis og borgarstjórnar og hefur þetta nýst hverfinu vel. Það er  nauðsynlegt fyrir svona fjölmennt hverfi að fá skýrar línur um hvað er verið að kjósa um og hvað frambjóðendur leggja áherslu á. Frambjóðendur verða að hitta íbúa og átta sig á því að það eru íbúarnir sem ráða ferðinni. Íbúar geta spurt frambjóðendur spurninga en í upphafi fundar munu frambjóðendur svara spurningum sem þeir hafa fengið sendar til sín. Þetta er gert til að fá sem mest út úr fundinum og jafnframt eru þarna spurningar sem stjórn íbúasamtakanna telur nauðsynlegt að fá svör við. Með þessu fyrirkomulagi geta frambjóðendur undirbúið sig fyrir fundinn og er því engin afsökun fyrir því að svara ekki. Þetta er jafnframt gert til að nýta tímann vel og að frambjóðendur fari ekki að tala um alla Reykjavík heldur einungis um Breiðholtið og nágrenni.

Eftirfarandi spurningar fá frambjóðendur og munu svara í upphafi fundar:

1. Hvernig sérðu fyrir þér reglur þar sem komið er í veg fyrir að hlutir detti út af skipulagi án þess að það sé kynnt?  Er ekki eðlilegt að svona breytingar séu kynntar / auglýstar rétt eins og hverjar aðrar breytingar á skipulagi?  Munt þú beita þér fyrir því?  Hvernig er staðan með göngubrúna okkar Breiðholtsbúa sem felld var út af skipulagi eða með mislægu gatnamótin Reykjanesbraut/Bústaðavegur?  Hver ber ábyrgð?

2. Nú er verið að skipta út umferðarljósum á Breiðholtsbraut. Hvernig verður því fylgt eftir að umferðarflæði náist á þessari leið þannig að umferð haldi réttum hraða svo hún geti haldið áfram án þess að lenda á rauðu ljósi? 

3. Hvenær á að ljúka við Stekkjarbakkann? Leiðin frá Höfðabakka og niður á Reykjanesbraut.

4. Hvenær á að setja hita í brekkuna efst í Höfðabakkabrekkuna þar sem hann kemur að Vesturhólum?  Munt þú beita þér fyrir þessu?

5. Hvenær verður trukkastæðið lagt af á móts við Seljabraut 62-84? (Dagsetning takk).

6.  Innan ÍR eru 9 deildir. Munt þú beita þér fyrir því að bæta núverandi aðstæður iðkenda þeirra til íþróttaæfinga og keppni og ef svo er með hvaða hætti? 

 

Þeir sem mæta eru:

Sjálfstæðisflokkur:  Halldór Halldórsson 

Samfylking: Dagur B. Eggertsson 

Píratar: Halldór Auðar Sveinsson 

Vinstri Græn: Sóley Tómasdóttir 

Framsókn: Guðlaugur G. Sverrisson 

Björt Framtíð: S. Björn Blöndal 

Dögun: Þorleifur Gunnlaugsson