Fræðslustarf fyrir ungmenni um réttindi og skyldur á vinnumarkaði

Íþróttir og útivist Mannlíf

""

Nýtt fræðslustarf um réttindi og skyldur á vinnumarkaði hefur göngu sína í sumar. Fræðslan er ætluð 17-18 ára ungmennum sem eru að stíga sín fyrstu skref á vinnumarkaðnum.

Tveir fræðarar, Jökull Smári Jakobsson og Kristín Ólafsdóttir, voru ráðin til starfa. Verkefnið er unnið í samstarfi við vefinn www.attavitinn.is en fræðararnir munu hafa aðsetur í Hinu Húsinu. Fyrsta vikan hefur farið í hugmyndavinnu, undirbúning og heimsóknir í stéttarfélög sem mun nýtast í fræðslur á vinnustöðum borgarinnar.

Markmið fræðsluteymisins er að ungt, vinnandi fólk verði meðvitað um réttindi sín og skyldur. Praktísk atriði á borð við launaseðilinn, starfsumsókn, úrræði fyrir atvinnulausa og hlutverk stéttarfélaga verða tekin fyrir, auk þess sem farið verður í viðhorf til vinnu og framtíðardrauma.

Jökull Smári sem er nítján ára segir nauðsynlegt að fræða ungt fólk um þessi mál. „Þetta er mjög nauðsynlegt verkefni þar sem ungt fólk virðist þekkja lítið til vinnumarkaðarins. Sjálfur vissi ég næstum ekki neitt um réttindi mín og skyldur áður en ég hóf hér störf. Ég tel mig þess vegna afar heppinn að fá tækifæri til þess að upplýsa sjálfan mig og aðra í leiðinni um þessi málefni.“

Kristín sem er tvítug tekur í sama streng. „Við höfum fengið rosalega góð viðbrögð við verkefninu, stéttarfélögin hafa tekið vel á móti okkur og eru boðin og búin að svara öllum spurningum. Ég held að það sé löngu kominn tími til að vekja ungmenni til umhugsunar um hagsmuni sína, það er greinilegt að þau liggja betur við höggi úti á vinnumarkaðnum en þeir sem eldri og reyndari eru”.