Fræðsludagskrá Reykjavík-iðandi af lífi fyrir sumarið 2014 er farin af stað og næsti viðburður verður á morgun, fimmtudaginn 5. júní kl 13. Þá verður boðið upp á fræðslugöngu um Rauðhólafólkvang sem ber heitið Friðlýst svæði í Reykjavík. Fólkvangurinn í Rauðhólum er einmitt eitt af sex svæðum í Reykjavík sem eru friðlýst samkvæmt náttúruverndarlögum. Í fræðslugöngunni verður sagt frá sérkennum svæðisins og greint frá mikilvægi friðlýstra svæða fyrir náttúruvernd.
Í fólkvanginum finnast stórmerkilegar jarðminjar sem eru Rauðhólarnir. Þeir eru gervigígar sem mynduðust þegar Leitahraun rann í átt til sjávar fyrir um 5200 árum. Þegar hraunið rann yfir votlendið á Elliðavatnssvæðinu urðu miklar gufusprengingar sem ollu því að gígarnir mynduðust. Gígarnir eru ekki heilir því um miðja 20. öld var numinn vikur úr þeim í töluverðum mæli. Þrátt fyrir þessar skemmdir eru þeir tignarlegar jarðmyndanir.
Í fólkvanginum er einnig fjölbreytt gróðurfar, meðal annars ein stærstu votlendissvæði í Reykjavík. Þar er einnig auðugt fuglalíf. Rauðhólafólkvangur tilheyrir stór-Heiðmerkursvæðinu og er vinsælt til útivistar.
Fræðslugangan hefst kl 13 og verður hist við nyrðra bílastæðið við Heiðmerkurveg en það bílastæði má sjá mjög fljótlega hægra megin þegar beygt er af þjóðvegi 1 inn á Heiðmerkurveg. Snorri Sigurðsson líffræðingur og verkefnastjóri Reykjavík-iðandi af lífi mun leiða gönguna.
Reykjavík-iðandi af lífi er fræðsluátak um líffræðilega fjölbreytni í Reykjavík sem er í umsjón umhverfis - og skipulagssviðs borgarinnar. Í sumar verður fjölbreytt fræðsludagskrá með reglulegum viðburðum. Fræðsludagskrána má sjá hér og á heimasíðu Reykjavík-iðandi af lífi. Sjá einnig Facebook síðu fræðsluátaksins.