Fræðsluganga um fugla fyrir enskumælandi.

Umhverfi

""

City of Birds heitir fræðsluganga á vegum Reykjavík-iðandi af lífi þar sem fuglalíf borgarinnar verður kynnt á ensku við Reykjavíkurtjörn.

----------------------------

City of Birds - a guided tour in english about the birds of Reykjavík by the Tjörnin lake in central Reykjavík.

Gangan fer fram á fimmtudaginn 14. ágúst kl 13 og hefst við Ráðhús Reykjavíkur. Gengið verður kringum Reykjavíkurtjörn og að Friðlandinu í Vatnsmýri. Gestir verða fræddir um lífríki Tjarnarinnar og um hið fjölbreytta fuglalíf borgarinnar.

Hist verður við syðri inngang Ráðhússins við Tjarnargötu kl 13. Snorri Sigurðsson líffræðingur stýrir göngunni.

Reykjavík-iðandi af lífi er fræðsluátak um líffræðilega fjölbreytni í Reykjavík. Fræðsluátakið er á vegum umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkur. Sjá nánar: www.reykjavik.is/idandi.

Síða um viðburðinn: https://www.facebook.com/events/263122863898452/

--------------------------------------------------------------------

The guided walk in english will take place on Thursday the 14th of August at 1pm and will start at the City Hall of Reykjavík. Guests will walk around the Tjörnin lake and to the Bird reserve in Vatnsmýri. The biodiversity of the Tjörnin area will be introduced as well as general information about the bird-life of Reykjavík.

Guests will meet up at 1 pm by the southern entrance of the City Hall, on Tjarnargata street. Snorri Sigurðsson, a biologist at the Reykjavík Department of Environment and Planning, will lead the walk.