Foreldrar fjölmenntu á námskynningu í Norðlingaskóla

Skóli og frístund

""

Foreldrar barna í Norðlingaskóla kynntu sér skólastarfið og fyrirkomulag náms í hinum einstöku námsgreinum á skemmtilegri sýningu sem sett var upp í skólanum. 

Fjölmenni var á opnu húsi í Norðlingaskóla síðdegis 10. september þegar þar fóru fram námskynningar haustsins. Í þetta sinn var bryddað upp þeirri nýjung að öll fagteymi skólans settu upp kynningarbása þar sem þau kynntu vetrarstarfið, skipulag náms og kennslu, námsleiðir og helstu áherslur.

Starfsfólki skólans þótti gaman að sjá hvað foreldrar stöldruðu lengi við og margir höfðu á orði að með þessu móti fengist góð yfirsýn yfir allt skólastarfið, ekki bara námshópinn sem barnið þeirra er í. Þá töldu margir foreldrar að þetta gæfi þeim enn betra færi á því að spyrja starfsfólk um hvaðeina sem sneri að skólastarfinu og fengju þeir jafnvel greiðari svör en á fjölmennum kynningarfundi.

Sif Vígþórsdóttir skólastjóri segir að þetta fyrirkomulag á námskynningum verði þróað áfram og hafa stjórnendur skólans því óskað eftir ábendingum frá foreldrum og starfsfólki um það sem betur má fara svo sýningin í skólanum verði enn betri á næsta ári.