Hólabrekkuskóli er fyrsti skólinn í Reykjavík sem tekur Vinaliða-verkefnið upp. Aðalmarkmiðið með Vinaliða-verkefninu er að bjóða öllum nemendum skólans fjölbreyttara úrval afþreyingar í frímínútum, þannig að bæði yngri og eldri nemendur skólans finni eitthvað við sitt hæfi. Markmið Vinaliða er að allir nemendur skólans hlakki til að mæta í skólann sinn, alla daga.
Foreldrafélag Hólabrekkuskóla ætlar að vera styrktaraðili verkefnisins og sjá til þess að endurnýja og bæta við dótið eftir þörfum. Á föstudag afhentu fulltrúar Foreldrafélagsins nemendum og kennurum dót að upphæð 150 þús kr sem mun nýtast börnunum vel í frímínútum. Með þess sem keypt var:
- 60 vesti í 4 litum til að skipta krökkunum í lið.
- 20 keilur í 2 litum til að afmarka leiksvæði.
- Alls konar boltar, handboltar, fótboltar, körfuboltar, brenniboltar og bandíboltar. Yfir 20 stk.
- 10 snú snú bönd.
- 10 húllahringi.
- 20 baunapoka.
- 15 krítarpakka.
- 2 víkingaspil (kubb).
- 5 risa mikado.
Skólalóðin og frímínúturnar eru, því miður, samkvæmt eineltisrannsóknum helsti vettvangur fyrir einelti. Vinaliðaverkefnið er ekki eineltisáætlun heldur stuðningsverkefni við eineltisáætlun skólans og er hugmyndafræðin sú að þar sem boðið er upp á skipulagt starf, fái gerendur eineltis aðra hluti til að hugsa um. Aðgerðarleysi er nefnilega oft rótin að slæmum hlutum.
Meira um Vinaliða er að finna á vefslóð Hólabrekkuskóla:
http://holabrekkuskoli.is/index.php?option=com_content&view=article&id=973%3Avinaliear&catid=53%3Afrettir&Itemid=79