Fjörugt fuglalíf - þriðjudagsganga í Viðey

Mannlíf Menning og listir

""

Á morgun hefjast vikulegar þriðjudagsgöngur í Viðey en þá mun Jóhann Óli Hilmarsson fuglafræðingur fræða gesti  og gangandi um fjölskrúðugt fuglalíf eyjarinnar. 

Jóhann Óli, fuglafræðingur og ljósmyndari, er manna fróðastur um fugla og hefur gefið út afar fallegar og fræðandi bækur um fugla Íslands.



Fuglalífið í Viðey er fádæma fjörugt en um 30 tegundir verpa í eynni. Mest er um æðarfugl og grágæs og stundum kemur fyrir að menn rekast á sjaldgæfar tegundir eins og jaðrökuna sem er hálslangur vaðfugl eða óðinshana. Dálítið er af teistu og hrafninn gerir sér líka hreiður í eyjunni.

Þessi skemmtilega ganga er kærkomið tækifæri til að njóta hressandi útiveru, fuglalífs og fallegrar náttúru í túnfæti borgarinnar.

Í göngulok má tylla sér niður við Viðeyjarstofu, njóta kvöldsólarinnar yfir sundunum og fá sér hressingu áður en haldið er heim á leið um kl. 22.00.



Á sumrin eru aukaferðir á þriðjudagskvöldum til Viðeyjar frá Skarfabakka kl. 18.15 og 19.15. Kaffihúsið í Viðeyjarstofu er opið þessi kvöld og upplagt að njóta kvöldverðar í eynni áður en leiðsögn hefst.

Gangan með Jóhanni Óla hefst kl. 19.30 við Viðeyjarstofu og tekur eina og hálfa til tvær klukkustundir.



Gjald í ferjuna fram og til baka er kr. 1100,- fyrir fullorðna og kr. 550,- fyrir börn 7–15 ára í fylgd fullorðinna. Frítt fyrir 6 ára og yngri. Leiðsögnin er ókeypis og allir velkomnir.



Við minnum á að handhafar Menningarkorts Reykjavíkur fá 10% afslátt í Viðeyjarferjuna og í Viðeyjarstofu.