Frostaskjól stendur í haust fyrir námskeiðum fyrir fjölskyldur í Vesturbæ sem hafa það að markmiði að efla samveru foreldra og barna.
Boðið verður upp á fjölbreytt námskeið svo allir geti fundið eitthvað við hæfi sem bætir frítíma fjölskyldunnar. Meðal þess sem læra má er að taka ný græn skref, hvernig temja má sér heilsusamlegan lífsstíl, og hvernig búa má til holla og bragðgóða þeytinga. Þá er boðið upp kökusleikkjó-námskeið og námskeið í sverðagerð svo eitthvað sé nefnt.
Nánari upplýsingar um námskeiðin og skráningu má finna inn á www.frostaskjol.is
Einnig í bæklingi um námskeiðin.