Styrktarfélagið Jógahjartað stendur fyrir fjölskyldujógaviðburði í Viðey þann 7. júní nk. kl. 13.00 - 14.30.
Gerðar verða jógaæfingar, farið í leiki, andað djúpt í sjávarloftinu, farið verður í hugleiðslu og slökun undir heilandi tónum gongsins í guðsgrænni náttúrunni.
Gott er að taka teppi með fyrir slökunina og nestið á eftir.
Þátttökugjaldið eru 500 kr. á mann en frítt er fyrir 3 ára og yngri. Aðeins hægt að greiða með reiðufé í Viðey eða leggja aðgangseyrinn inn á reikning Jógahjartans: kennitala 510414-1010, reikningur 526-14-403558.