Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn iðandi af lífi

Íþróttir og útivist Mannlíf

""

Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn og Reykjavík – iðandi af lífi  munu standa saman að fræðslu um líffræðilega fjölbreytni. Líffræðileg fjölbreytni er lykilhugtak í náttúruvísindum og vísar í allan margbreytileika lífríkisins, tegundafjölbreytni lífvera, breytileika einstaklinga innan tegunda og fjölbreytni lífverusamfélaga og vistkerfa.

Vakin verður athygli á þeirri fjölbreytni sem finnst innan girðingar Fjölskyldu- og húsdýragarðsins og í íslensku dýralífi. Víða um garðinn verða upplýsingaspjöld þar sem lesa má um þær dýrategundir sem eru í garðinum. Sérstök áhersla verður lögð á að kynna flokkunarfræði dýranna og sagt frá því hvaða dýrategundir eru þeirra nánustu ættingjar. Einnig verður fræðsla um mikilvægi þess að varðveita líffræðilega fjölbreytni, um fjölbreytileika innan tegunda og um sérkenni íslenskra húsdýrastofna.

Gestir Fjölskyldu- og húsdýragarðsins eru hvattir til að kynna sér þessi upplýsingaspjöld, hugleiða tegundafjölbreytnina í garðinum og velta fyrir sér mikilvægi þess að hlúa að fjölbreytilegu lífríki á Íslandi sem og jörðinni allri.

Opið er í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn alla daga milli klukkan 10 og 17. Sjá nánar á heimasíðu garðsins, www.mu.is.

Reykjavík – iðandi af lífi er fræðsluátak um náttúru og lífríki Reykjavíkur á vegum umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkur. Sjá nánar á heimasíðunni: www.reykjavik.is/idandi og Facebook síðunni www.facebook.com/reykjavikidandi