Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn hlaut Landbúnaðarverðlaunin 2014

Íþróttir og útivist

""

Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn sem opnaði 1990 hefur frá upphafi gert höfuðborgarbúum kleyft að sjá flest helstu húsdýr á Íslandi innan borgarmarkanna. 

Gríðarleg ásókn er í garðinn og á síðasta ári sóttu um 200 þúsund manns hann heim. Fyrir fræðslu og kynningarstarf hlaut Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn Landbúnaðarverðlaunin 2014.

Tómas Óskar Guðjónsson, forstöðumaður tók við viðurkenningunni við setningu búnaðarþings á laugardaginn.