Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn fyrstur til að ljúka við 4 græn skref
Umhverfi Íþróttir og útivist
Verkefnið Græn skref byggist á fjölmörgum aðgerðum sem snerta níu þætti sem hafa áhrif á umhverfið og eru innleidd í fjórum skrefum innan stofnana borgarinnar. Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn er fyrsti vinnustaður Reykjavíkurborgar til að ljúka við öll verkefnin í skrefi 1, 2, 3 og 4 í Grænum skrefum í starfsemi Reykjavíkurborgar.
Tímamótunum var fagnað í Fjölskyldu og húsdýragarðinum og afhenti Jón Gnarr borgarstjóri starfsfólki vinnustaðarins viðurkenningu fyrir framtakið.
Starfsfólk Fjölskyldu- og húsdýragarðsins hafa lokið við verkefni eins og að flokka rusl, spara orku, draga úr pappírsnotkun, fylgjast með notkun pappírs, rafmagns, hita, losun gróðurhúsalofttegunda og magni hreinlætisvara en vinnustaðurinn hefur einnig bætt gott um betur með breyttu vinnulagi. Sem dæmi má nefna að með einföldum breytingum á húsnæði fjóssins dró verulega úr þörf á að fá bíl til að dæla upp dýraúrgangi og keytu úr fjósinu. Þetta framtak hefur leitt af sér milljóna króna sparnað fyrir garðinn.
"Við göngum lengra í sumum verkefnum en Græn skref gera ráð fyrir“ segir Valdimar Guðlaugsson sem er tengiliður Grænna skrefa. „Til dæmis eru 50% af plastpokum sem við kaupum umhverfisvottaðir. 80% af úrgangi frá dýrunum fer til moltugerðar, steikingarolía fer til Biodiesel gerðar, ónýt raftæki eru rifin sundur á verkstæði og nýtanlegir hlutir úr þeim eru notaðir til viðgerða á öðrum tækjum og aðrir hlutar þeirra flokkaðir og sent til endurvinnslu.Timbur,málmar og hjólbarðar er einnig sent til endurvinnslu".
Gestir garðsins verða fljótt varir við að vinnustaðurinn starfar eftir grænum gildum. Á útisvæðum eru flokkunarílát undir margskyns rusl og einnig á kaffistofunni á svæðinu. Gestir hafa aðgang að ílátum undir flokkaðan úrgang og hafa haft um árabil.
Starfsfólk hefur aðgang að vistvænum fararskjótum, bæði hjólum og rafvespum. Farartæki á staðnum eru 6, einn bíll, tveir rafmagnsbílar og 3 rafknúnar vespur til sendiferða. Hlutfall visthæfra ökutækja er því rúm 80% sem er umfram 75% viðmið 4 skrefs Grænna skrefa.
Framkvæmd verkefnisins Grænna skrefa í starfsemi Reykjavíkurborgar er einföld og aðgengileg og allir vinnustaðir á vegum Reykjavíkurborgar geta tekið þátt. Nánari upplýsingar um verkefnið má finna hér: Græn skref í starfsemi Reykjavíkurborgar