Nú stendur yfir undirbúningur fyrir Fjölmenningarþing Reykjavíkurborgar sem haldið verður í þriðja sinn þann 15. nóvember næstkomandi. Á fjölmenningarþinginu gefst innflytjendum tækifæri til að koma skoðunum sínum á framfæri og ræða stöðu innflytjendamála í borginni. Þingið verður haldið í Ráðhúsinu og stendur frá kl. 10.00-16.00.
Miðvikudaginn 8. október verður haldinn fundur í Gerðubergi kl. 20.00. Mannréttindaráð boðar til fundarins og er tilgangurinn að ræða á lifandi hátt fyrirkomulag næsta fjölmenningarþings. Hvað viljum við tala um? Hvað er mikilvægt að vekja athygli á? Við viljum heyra raddir sem flestra og hlökkum til að sjá ykkur í Gerðubergi!