Fjölmenningarþing Reykjavíkurborgar verður haldið í þriðja sinn laugardaginn 15. nóvember í Ráðhúsi Reykjavíkur. Alls búa um 13.000 innflytjendur í Reykjavík og er markmiðið með þinginu að skapa umræður um málefni hópsins.
Umræðuefni á þinginu verða meðal annars: menntamál, gagnkvæm aðlögun, réttindabarátta innflytjenda, fræðslumál, móttaka nýrra íbúa í Reykjavík og fleira.
Unnið verður í hópum með borðstjóra á 10 tungumálum; íslensku, ensku, pólsku, litháísku, rússnesku, tælensku, víetnamísku, filippseysku, spænsku og arabísku.
Niðurstöður þingsins verða nýttar sem hluti að aðgerðaráætlun vegna þátttöku borgarinnar í verkefninu Fjölmenningarborgir (e. Intercultural Cities).
Á þinginu verður einnig kosið í fjölmenningarráð Reykjavíkur og hafa allir skráðir þingfulltrúar kosningarétt. Í ráðinu verða 5 fulltrúar, 3 verða kosnir og 2 tilnefndir af borgarrstjórn. Allir þeir sem eru eldri en 18 ára af erlendum uppruna og búsettir í Reykjavík geta boðið sig fram.
Leitað er að aðilum sem hafa brennandi áhuga á málefnum innflytjenda og eru tilbúnir að starfa með Reykjavíkurborg sem talsmenn innflytjenda. Þeir sem hafa áhuga á að bjóða sig fram og vilja fá nánari upplýsingar geta haft samband við mannréttindaskrifstofu Reykjavíkur með tölvupósti á netfangið mannrettindi@reykjavik.is eða í síma 411 4153.
Kosning í ráðið stendur frá klukkan 10.00 til 15.00. Úrslit kosninga verða svo kynnt mánudaginn 17. nóvember nk. í Ráðhúsi Reykjavíkur klukkan 14.00.
Skráning á þingið stendur til 10. nóvember nk.