Fjöldi fólks sækir Vetrarhátíð

Betri hverfi Skóli og frístund

""

Fjölmargir hafa sótt viðburði á Vetrarhátíð sem nú stendur yfir.  Ljósalistaverk, Heimsdagur barna, Safnanótt og margt fleira spennandi hefur verið í boði undanfarna daga. Nú kynnum við tvö ljósalistaverk til viðbótar sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara. 

Glitrandi draumar er ljósalistaverk eftir leikskólabörnin á Drafnarsteini. Tréð á Bláa róló verður í aðalhlutverki en listamennirnir skreyta það með glitrandi hugmyndum sínum og draumum. Ljósgeislar frá upplýstu trénu endurvarpa draumunum upp í himininn og dreifa þeim um allan heim til annarra barna. Tendrun trésins fer fram á horni Túngötu og Bræðraborgarstígs, þriðjudagsmorguninn 11. febrúar kl. 9:00. Að lokinni tendrun munu börnin syngja eitt lag.

Ljósaverkið Glitrandi draumur var meðal hugmynda verkefnisins Betri hverfa 2013 sem er samráðsverkefni íbúa og stjórnsýslu Reykjavíkurborgar.

Skæruliðarnir í Guerrilla Lighting munu lýsa upp skammdegið með „árásum“ á illa lýst mannvirki í Breiðholti. Skæruliðarnir hafa valið nokkra staði í Efra Breiðholti sem þau munu umbreyta með ljósum. Hver „ljósaárás" stendur aðeins yfir í nokkrar mínútur og því mikilvægt að vera vel vakandi til að missa ekki af sjónarspilinu. Skæruliðarnir leiða áhorfendur á milli staða og bjóða upp á rjúkandi kakó eftir gönguna. Skæruliðahópurinn samanstendur af útskrifuðum nemendum auk fyrsta árs nemenda í lýsingarhönnun í Tækniskólanum og sjálfboðaliða frá félagsmiðstöðvum í Breiðholti. Ljósaárásirnar hefjast við inngang Fellaskóla í Efra Breiðholti miðvikudagskvöldið 12. febrúar kl. 20:00.