ATH: Þessi frétt er eldri en tveggja ára gömul.
Fjölbreytt og skemmtileg sumarstörf hjá Reykjavíkurborg
Reykjavíkurborg óskar eftir starfsfólki í fjölbreytt afleysinga- og sumarstörf.
Störfin eru margvísleg og snerta daglegt líf borgarbúa með ýmsum hætti. Reykjavíkurborg er einn stærsti vinnustaður landsins með hátt í átta þúsund starfsmenn. Við leitum að sumarstarfsfólki
til þess hjálpa okkur við gera Reykjavík að lifandi, fallegri og skapandi borg og að veita borgarbúum á öllum aldri þjónustu. Störfin eru laus til umsóknar fyrir alla 17 ára og eldri. Umsóknarfrestur er til 30. mars.