Unglingar úr félagsmiðstöðvum í Reykjavík voru í þremur efstu sætunum í Söngkeppni Samfés sem haldin var í Laugardalsholl um liðna helgi.
SamFestingurinn var haldinn síðastliðna helgi, 7.-8. mars í Laugardalshöll. SamFestingurinn er ball og söngvakeppni sem Samfés (samtök félagsmiðstöðva á Íslandi) heldur árlega fyrir unglinga. Þar komu saman ca. 4,500 unglingar úr félagsmiðstöðvum alls staðar af landinu. Á föstudagskvöldið var stórt ball þar sem var mikið dansað, spjallað og hlustað á flotta tónlist þar sem Páll Óskar endaði kvöldið með stæl þannig allir fóru sveittir og sælir heim að sofa.
Söngkeppni Samfés var svo haldin hátíðleg í Laugardalshöll laugardeginum eftir. Alls tóku 30 atriði þátt í keppninni úr félagsmiðstöðvum víðs vegar af landinu. Þar stóðu unglingar úr Reykjavík sig vel og hirtu þrjú efstu sætin. Systurnar Laufey og Júnía sigruðu keppnina, fyrir hönd félagsmiðstöðvarinnar 105 frá Reykjavík. Laufey söng lagið Who You Are eftir Jessie J. Hinn ungi Breiðhyltingur Levi Didriksen úr Hundrað&Ellefu lenti í öðru sæti með lagið Óendanleg ást, upprunalegt heiti lagsins er Unconditionally með Katy Perry. Í þriðja sætu urðu svo Bríet Íris og Ragnheiður Ingunn úr Laugó með lagið Pumped Up Kicks.
Við óskum þessum flottu krökkum til hamingju með árangurinn.