Félagsmiðstöð Spönginni 43, nafnasamkeppni

""

Á Grafarvogsdaginn, 17. maí næstkomandi verður opnuð félagsmiðstöð í Spönginni 43.  Félagsmiðstöðin mun hýsa starfsemi Korpúlfa, samtök eldri borgara í Grafarvogi, Kirkjusel Grafarvogskirkju, dagdeild fyrir heilabilaða, hárgreiðslustofu, fótaaðgerðastofu, mötuneyti, auk þess sem áhersla verður á ýmis konar starf með öllum aldurshópum.



Hér með er óskað eftir hugmyndum að nafni á félagsmiðstöðina.  Tillögum skal skilað á netfangið midgardur@reykjavik.is fyrir 11. maí nk.  Niðurstöður valnefndar verða kynntar við opnunina 17. maí þar sem vinningshafa verður veitt viðurkenning.