Fatlað fólk starfar á öllum sviðum borgarinnar

Stjórnsýsla Velferð

""

Skrifstofa borgarstjóra og borgarritara hefur svarað hugmynd frá Betri Reykjavík varðandi ráðningar fólks með fötlun til Reykjavíkurborgar. Í svarinu segir m.a. að fólk með fötlun starfi á öllum sviðum borgarinnar. Hins vegar liggi ekki fyrir tölulega upplýsingar um hversu margir starfsmenn borgarinnar tilheyri hópi fatlaðs fólks eða öryrkja.

Hugmyndin á Betri Reykjavík hljóðaði svona. Átak – Ráða fólk með fötlun til Reykjavíkurborgar. Hefur Reykjavíkurborg sett fordæmi með að ráða fólk með örorku til vinnu?

Svarið til borgarráðs við hugmyndinni er ítarlegt en í því kemur fram að fatlað fólk starfi nú þegar á öllum sviðum borgarinnar.  Enn fremur kemur fram í svarinu að mannréttindaskrifstofa Reykjavíkurborgar hafi ráðið starfsmann sem muni hafa það verkefni með höndum að kortleggja stöðu fatlaðra starfsmanna hjá borginni og enn fremur að vinna að nýjum lausnum til að auka atvinnuþátttöku fatlaðs fólks í samvinnu við stofnanir ríkis og borgar.

Svarið í heild sinni fer hér á eftir.

„Óskað var umsagnar skrifstofu borgarstjóra og borgarritara vegna hugmyndar af vefnum Betri Reykjavík varðandi ráðningar fólks með fötlun til Reykjavíkurborgar þar sem jafnframt var spurt hvort Reykjavíkurborg hafi sett fordæmi með að ráða fólk með örorku til vinnu.

Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks var hafður að leiðarljósi við gerð framtíðarsýnar Reykjavíkurborgar í málefnum fatlaðs fólks. Í því felst viðurkenning á sjálfstæðu lífi á eigin forsendum, jöfn tækifæri til virkrar þátttöku í samfélaginu, réttur til aðstoðar við að lifa innihaldsríku lífi og viðurkenning á fjölbreytileika mannlífsins og mannréttindum allra.

Ímannréttindastefnu Reykjavíkurborgar segir að unnið skuli markvisst að því að gera fólki með fötlun kleift að taka virkan þátt í borgarsamfélaginu. Þar segir að framlag hvers og eins skuli metið að verðleikum og starfsfólk skuli leggja sig fram um að skapa fordómalaust andrúmsloft í garð fatlaðra einstaklinga í starfi og leitast við að kynna sér aðstæður þeirra.

Í atvinnustefnu borgarinnar er einnig dregið fram mikilvægi þess að allir íbúar borgarinnar geti tekið virkan þátt í atvinnulífinu. Í stefnunni kemur fram að áhersla verði lögð á að fólk með skerta starfsgetu, fatlaðir og innflytjendur njóti sömu þjónustu og aðrir með það að markmiði að jafna tækifæri þeirra á við aðra til atvinnuþátttöku. Þá er það enn fremur leiðarljós starfsmannastefnu Reykjavíkurborgar að stofnanir og fyrirtæki borgarinnar starfi í anda jafnræðis og jafnréttis.

Í rannsókn sem kynnt var í febrúar 2014 um búsetu fatlaðs fólks og þjónustu sveitarfélaga, sem unnin var af Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands og Rannsóknasetri í fötlunarfræðum að beiðni Öryrkjabandalags Íslands, kemur m.a. fram að 49% þátttakenda í rannsókninni eru ekki í vinnu/skóla/dagþjónustu eða í atvinnuleit. Þetta eru sláandi niðurstöður og er bæði samfélagið að fara á mis við krafta þessara einstaklinga og þeir að fara á mis við að njóta virkrar þátttöku í samfélaginu.

Hjá Reykjavíkurborg starfar fólk með fötlun á öllum sviðum borgarinnar en ekki liggja fyrir neinar tölulegar upplýsingar um hversu margir starfsmenn borgarinnar tilheyra hópi fatlaðs fólks eða öryrkja. Þess vegna er ekki vitað hvort hlutfall fatlaðra og öryrkja í starfsmannahópnum endurspegli hlutfall fatlaðs fólks og öryrkja sem búa í borginni. Við ráðningu í störf hjá borginni er aldrei spurt um fötlun né slíkt skráð með neinum hætti. Það er einnig mikilvægt að hafa í huga í þessu samhengi að í mannréttindastefnunni kemur fram að virða beri rétt hvers og eins til að tjá sig, eða tjá sig ekki, um fötlun sína.

Ljóst er að það eru margvísleg gæði sem fatlaðir einstaklingar hafa af atvinnuþátttöku og því er mikilvægt að leita nýrra leiða í atvinnuuppbyggingu og endurhæfingu þannig að fatlaðir geti tekið fullan og virkan þátt í samfélaginu án aðgreiningar. Reykjavíkurborg hefur til margra ára í samstarfi við Geysi ráðið fólk með örorku til starfa og hefur það reynst mjög vel.

Reykjavíkurborg hefur jafnframt verið með átaksverkefni í gangi síðustu árin sem ætlað er að stuðla að ráðningum fatlaðs fólks og var komið á sérstakri fjárveitingu til þess. Árið 2013 var 21 einstaklingur í starfi sem greitt var af þessari fjárveitingu. Að öðru leyti er ekki haldið kerfisbundið utan um ráðningar fatlaðs fólks en sem dæmi má nefna starfa á flestum bókasöfnum fatlaðir einstaklingar, á mörgum þjónustumiðstöðvum velferðarsviðs,verkbækistöðvum umhverfis- og skipulagssviðs, í skólum og leikskólum. Nú er starfandi sérstakur stýrihópur atvinnumála sem hefur verið að skoða leiðir til þess að fjölga starfstækifærum fyrir fatlaða. Það er mikill vilji til þess hjá Reykjavíkurborg að gera enn betur í að fjölga ráðningum fatlaðs fólks og skoða nýjar leiðir og síðan um áramót hefur sérstakur starfshópur verið að skoða þessi mál. Fjárveiting til atvinnumála fatlaðra var hækkuð úr 14 mkr í 24 mkr í ár sem gera mun starfsstöðvum kleift að ráða fleira fólk með fötlun til starfa.

Mannréttindaskrifstofa Reykjavíkurborgar hefur frá og með 1. mars nk. ráðið starfsmann sem mun hafa það verkefni með höndum að kortleggja stöðu fatlaðra starfsmanna hjá borginni og enn fremur að vinna að nýjum lausnum til að auka atvinnuþátttöku fatlaðs fólks í samvinnu við stofnanir ríkis og borgar.

Samkvæmt stefnumótun borgarinnar eiga vinnustaðir að endurspegla margbreytileika borgarsamfélagsins og mikilvægt er að Reykjavíkurborg fylgi stefnu sinni eftir. Það er hinsvegar ljóst að verkefnið er ekki einfalt og það þarf að vinna í góðu samstarfi allra aðila.“