Farfuglarnir kveðja

Umhverfi

""

Fuglaskoðun verður í Grafarvogi þar sem fylgst er með vaðfuglum hópa sig á leirum vogsins.

Síðasti fræðsluviðburður á sumardagskrá Reykjavík - iðandi af lífi verður þriðjudaginn 9. september í hádeginu kl 12.30. Um er að ræða fuglaskoðun í Grafarvogi þar sem fylgst verður með vaðfuglum hópa sig saman og undirbúa sig fyrir að kveðja land og þjóð og halda á vetrarstöðvar í suðri. Hist verður við Grafarvogskirkju. Snorri Sigurðsson fuglafræðingur leiðir og eru gestir hvattir til að taka með sér kíki.