Færeyingar kveiktu ljós á íslensku jólatré á Tinghúsvöllinum

Umhverfi Skóli og frístund

""

Sóley Tómasdóttir, forseti borgarstjórnar, var viðstödd tendrunarathöfn íslenska jólatrésins í Þórshöfn í Færeyjum laugardaginn 29. nóvember. Tréð er gjöf frá Reykjavíkurborg og er þakklætisvottur fyrir frændsemi þjóðanna tveggja.

Sóley Tómasdóttir, forseti borgarstjórnar, afhenti tréð fyrir hönd Reykjavíkurborgar en þetta er í annað sinn sem reykvíkingar færa Þórshafnarbúum jólastré sem þakkarvott fyrir frændsemi og vináttu milli þjóðanna tveggja.

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, felldi sjálfur tréð á skógræktarsvæði Skógræktar Reykjavíkur á Elliðavatnsheiðinni í Heiðmörk um miðjan nóvember sl. Tréð er 12 metra hátt sitkagreni sem var gróðursett árið 1960 og er því 54 ára gamalt. Eimskip sá um flutning trésins til Færeyja.

Jólatréð stendur nú upplýst á Tinghúsvöllinum, torgi í miðborg Þórshafnar, og var margmenni samankomið við athöfnina í gær.

Heðin Mortensen borgarstjóri Þórshafnar þakkaði reykvíkingum kærlega fyrir gjöfina og sagði þetta góðan jólasið sem myndi styrkja enn frekar samstarf og vinsemd millil borganna tveggja. Hann bað fyrir kveðju til reykvíkinga með þökkum fyrir fallegt tré. :



" Eisini vil eg her nýta høvi til at ynskja íslendsku frændum okkara fyri vestan eini gleðilig jól og gott nýggjár, og takka fyri gott samstarv í árinum, sum fór".



Sjá nánar á heimasíðu Þórshafnar.