Sturtuklefi - Endurnýjun flísa á veggjum og gólfi, ný skilrúm, nýtt loft, nýjar sturtur. Stallar og steyptur þröskuldur fjarlægð. Niðurfallslagnir endurnýjaðar.
Þurrkklefi - Flísar á gólfi endurnýjaðar ásamt niðurföllum. Salerni, vaskar, handklæðastandar o. fl. endurnýjað. Tveir þriðju af stalli fjarlægður.
Búningsklefar – Skápar og bekkir yfirfarnir og lagaðir. Hárblásaraaðstaða gerð í stað tveggja skiptiklefa austast.
Loka þurfti lauginni í 3 daga meðan múrbrot fór fram. Fimmtudaginn 6. febrúar var opnað á ný með bráðabirgðabúningsaðstöðu fyrir konur í báðum útiskýlum, auk gáma með skápum.
Uppsetning útiklefanna er þannig:
Gámar með skápum og aðstöðu baðvarðar tengdir við útiklefa kvenna.
Þaki útiklefa kvenna lokað og settur upp hitablásari, 2 sturtum bætt við kvennaklefa, hurð sett milli útiklefa kvenna og karla, konur fá báðar aðstöðurnar. Í núverandi útiklefa karla verða settar upp 2 sturtur í viðbót auk salernis og vasks. Klefinn mun verða útiklefi kvenna á meðan framkvæmdum stendur.
Enginn útiklefi verður fyrir karla á meðan framkvæmdir eru í gangi.
Gert er ráð fyrir að vinnu við búningsklefana ljúki 11. apríl.