Endurnýja umsókn um húsaleigubætur

Velferð

""

Athygli er vakin á að samkvæmt lögum um húsaleigubætur nr. 138/1997 skal endurnýja umsókn um húsaleigubætur árlega í upphafi árs og gildir umsóknin til ársloka.

Umsækjendur um húsaleigubætur í Reykjavík eru minntir á að skila umsókn fyrir árið 2015 til þjónustumiðstöðva Reykjavíkurborgar í síðasta lagi 16. janúar næstkomandi.

Þeir sem eiga lögheimili í Vesturbæ hafi samband við Þjónustumiðstöð Vesturbæjar, Hjarðarhaga 45-47, sími 411 1700.

Þeir sem eiga lögheimili í Miðborg eða Hlíðum hafi samband við Þjónustumiðstöð Miðborgar/Hlíða, Laugavegi 77, sími 411 1600.

Þeir sem eiga lögheimili í Laugardal eða Háaleiti hafi samband við Þjónustumiðstöð Laugardals/Háaleitis, Síðumúla 39, sími 411 1500.

Þeir sem eiga lögheimili í Breiðholti hafi samband við Þjónustumiðstöð Breiðholts, Álfabakka 12, sími 411 1300.

Þeir sem eiga lögheimili í Árbæ, Grafarholti eða Norðlingaholti hafi samband við Þjónustumiðstöð Árbæjar/Grafarholts, Hraunbæ 115, sími 411 1200.

Þeir sem eiga lögheimili í Grafarvogi eða Kjalarnesi hafi samband við Þjónustumiðstöð Grafarvogs, Gylfaflöt 5, sími 411 1400.