Í sumar hefur skólalóðin við Fossvogsskóla tekið gagngerum breytingum. Ráðist var í fyrsta áfanga af þremur við að endurgera lóðina og hefur m.a. verið sett upp nýtt leiksvæði.
Á vesturhluta lóðarinnar hafa verið sett upp ýmis leiktæki fyrir yngstu nemendur skólans, s.s. rólur, jafnvægisstöng og snúnings jafnvægistæki og fallvörn undir þau. Einnig lítill körfuboltavöllur. Mikil ánægja er með endurbæturnar og er skólinn vel í stakk búinn til að taka á móti skólabörnunum þetta haustið, en 335 nemendur verða í Fossvogsskóla í vetur.