Mæðgurnar Embla Ágústsdóttir og Guðrún Hjartardóttir fengu Múrbrjótinn og hvatningarverðlaun Öryrkjabandalags Íslands fyrir verkefni sitt og erindi "Af hverju er barnið mitt ekki úti að éta sand?"
Erindi þeirra mæðgna byggir á reynslu þeirra af skólagöngu Emblu og viðhorfum til barna og fullorðinna með fötlun. Þær hafa víða flutt þetta erindi, m.a. fyrir starfsmenn skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar eða fyrir um 1.800 áheyrendur á liðnum misserum.
Múrbrjóturinn er viðurkenning Landssamtaka Þroskahjálpar og eru þau veitt þeim sem þykja hafa sýnt frumkvæði og ýtt undir viðhorfsbreytingu og nýsköpun varðandi þátttöku fatlaðs fólks í samfélaginu og þar með sýnt samfélagslega ábyrgð. Meginmarkmið hvatningarverðlauna Öryrkjabandalags Íslands er að varpa ljósi á þá sem hafa með jákvæðum hætti stuðlað að einu samfélagi fyrir alla.
Emblu og Guðrúnu er óskað til hamingju með þessar viðurkenningar.