Elstu leikskólabörnin fá ný öryggisvesti

Velferð Skóli og frístund

""

Þessa dagana er Slysavarnarfélagið Landsbjörg að dreifa nýjum öryggisvestum í alla leikskóla landsins. 

Elstu leikskólabörnin í Reykjavík njóta góðs af gjöfum hjálparsamtakanna og nokkurra fyrirtækja sem gefa leikskólunum endurskinsvestin. Engar auglýsingar eru á vestunum sem veita börnunum öryggi í umferðinni þegar þau fara í vettvangsferðir. 

Fyrirtækin sem standa að þessari gjöf eru fyrir utan Landsbjörg: Neyðarlínan, TM, HB Grandi, Verkfræðiskrifstofan Efla, ISAVIA, Hópferðamiðstöðin Trex, Valitor,  Landsvirkjun, Securitas, Morgunblaðið, Arionbanki, Tæknivörur, Skeljungur, Umferðarstofa, Norðurál og Dynjandi.