Allar skáksveitir Rimaskóla sigrðu á Reykjavíkurmóti grunnskólasveita sem fram fór í Skákhöll TR 10. febrúar.
Krakkarnir 16 á myndinni voru fulltrúar Rimaskóla á Reykjavíkurmóti grunnskólasveita sem fram fór í Skákhöll Taflfélags Reykjavíkur 10. febrúar. Þeir skipuðu fjórar skáksveitir skólans sem allar sigruðu í sínum flokki og unnu báða verðlaunabikarana sem keppt var um.
A sveit Rimaskóla vann nokkuð öruggan sigur og hlaut 25 vinninga af 28 mögulegum. Rimaskólastúlkur unnu stúlknaflokkinn og af B og C sveitum voru það Rimaskólasveitirnar sem náðu bestum árangri.
Rimaskólakrakkarnir höfðu verið í skákbúðum Fjölnis helgina áður og virtust koma sjóðheitir til leiks. Kennararar þeirra eru Björn Ívar Karlsson frá Skákakademíu Reykjavíkur, Helgi Ólafsson og Hjörvar Steinn Grétarsson frá Skákskóla Íslands. Krakkarnir æfa allir með Skákdeild Fjölnis í Grafarvogi.
Reykjavíkurskákmót grunnskóla
Fór með 16 Rimaskólanemendur á mótið - 4 skáksveitir
120 þátttakendur
Opinn flokkur - Rimaskóli 1. sæti
Stúlknaflokkur - Rimaskóli 1. sæti
B flokkur - Rimaskóli 1. sæti
C flokkur- Rimaskóli 1. sæti.