Menntun núna í Breiðholti býður konum af erlendum uppruna velkomnar á vinnustofuna „Finndu þinn X Factor“ með Rúnu Magnús í janúar 2015. Aðeins 30 sæti eru í boði. Lokadagur skráningar er 15. janúar, en námskeiðið hefst 24. janúar. Um er að ræða þrjár 3 klukkustunda vinnustofur þar sem þátttakendur fá tækifæri til að vinna að sinni framtíðarsýn, uppgötva fimm stærstu ástríðurnar í lífi og starfi, gildin sín, náttúrulega styrkleika, hæfileika og eiginleika.
Að vinnustofu lokinni fá þátttakendur tækifæri til að eiga sæti í sínum eigin MASTERMIND hópi, sem hefur það eitt að markmiði að styðja og styrkja hvor aðra til að ná tilsettum árangri. Námskeiðið er kennt á íslensku. Allar upplýsingar er að finna á menntun-nuna.is. Skráning er með tölvupósti í menntun.nuna@reykjavik.is eða í síma 664 7706.