Eggert Jóhannson, feldskeri, heiðursiðnaðarmaður ársins 2014

Umhverfi Framkvæmdir

""
 
Iðnaðarmannafélagið í Reykjavík hélt sína sjöundu verðlaunahátíð til heiðurs nýsveinum sem luku burtfararprófi í iðngreinum með afburðaárangri 2013 nú um helgina. Eggert Jóhannsson, feldskeri, var kjörinn heiðursiðnaðarmaður ársins. Athöfnin fór fram í Ráðhúsi Reykjavíkur á laugardag.
 
Undanfarin ár hefur IMFR heiðrað nýsveina úr iðngreinum frá 12 verkmenntaskólum við hátíðlega athöfn í Ráðhúsi Reykjavíkur. Að þessu sinni hlutu 20 nýsveinar viðurkenningar fyrir góðan árangur í sínu fagi. Þá var kjörinn heiðursiðnaðarmaður ársins og að þessu sinni er það Eggert Jóhannsson feldskeri. 
 
Forseti Íslands, hr. Ólafur Ragnar Grímsson sem er verndari hátíðarinnar, flutti ávarp. Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra og Jón Gnarr, borgarstjórinn í Reykjavík ávörpuðu nýsveina og gesti.
 
Iðnaðarmannafélagið í Reykjavík var stofnað 1867 og fagnar nú 146 ára afmæli. Tilgangur þess frá upphafi er að „efla menningu og menntun iðnaðarmanna og styrkja stofnanir sem starfa í þeirra þágu“.
 
Iðnaðarmannafélagið stóð fyrir stofnun Iðnskólans í Reykjavík 1904 og er nú einn af hluthöfum Tækniskólans – skóla atvinnulífsins. Félagið reisti Iðnó 1896, stóð fyrir fyrstu iðnsýningunni 1883, gaf þjóðinni styttu Ingólfs Arnarsonar á Arnarhóli 1924 – svo fátt eitt sé nefnt.