"Ég þarf vini til að líða vel"

Skóli og frístund Mannlíf

""

Börnin á frístundaheimilum Kamps fóru í dag í árlega Réttindagöngu til að minna á réttindi sín og fagna 25 ára afmæli Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. 

Réttindagangan lagði upp frá Hallgrímskirkju í blíðviðri og vetrarsól og var gengið undir litríkum kröfuspjöldum niður í Ráðhús þar sem sett hefur verið upp sýningin Öll börn eru mikilvæg! Þar eru verk barna sem hafa unnið upp úr efni Barnasáttmálans og endurspegla vilja þeirra til frelsis, vináttu, frjálsrar tjáningar og vilja. Á kröfuspjöldum Réttindagöngunnar mátti lesa boðskap barnanna, m.a. Börn eiga rétt á að ganga í skóla!, Öll börn eiga rétt á nafni!, Öll börn eiga rétt á að vera mikilvæg! 

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri tók á móti börnunum í Ráðhúsinu, spjallaði við þau um Barnasáttmálann og tók lagið með þeim og Línusi Orra. Þá skoðaði hann sýninguna undir leiðsögn barnanna. Á henni býðst gestum tækifæri til að taka þátt í ýmsum leikjum, s.s. Réttindaspilinu og að skrifa friðarósk á óskatré Yoko Ono. Allir eru velkomnir á sýninguna sem er opin til 18. nóvember.