Skráning er hafin á ráðstefnu fyrir starfsfólk leikskólanna um mat á námi og velferð barna sem haldin verður 5. febrúar á Hilton Nordica hótelinu.
Á ráðstefnunni sem hefst kl. 8:30 verða flutt fjögur erindi og boðið upp á umræður og skemmtan.
Dagskrá
8:30 Setning - Hildur Skarphéðinsdóttir, skrifstofustjóri SFS.
8:45 Tónlist
9:00 Gæði og jafnrétti í skólastarfi á tímum markaðsvæðingar, Dr. Berglind Rós Magnúsdóttir, lektor við HÍ.
9:45 Bæjarfélagið okkar – lýðræði og læsi Anna Sofia Wahlström, deildarstjóri í leikskólanum Holti í Reykjanesbæ.
10:15 Kaffihlé
10:45 Námssögur barna. Mat á vellíðan og þátttöku, Kristín Karlsdóttir, lektor við HÍ.
11:30 "Ég vil æfa mig að hoppa eins og spýtukarl úti" Anna Gréta Guðmundsdóttir, deildarstjóri í Sæborg.
12:00 Umræður á borðum.
12:20 Samantekt og slit Lilja Eyþórsdóttir, leikskólastjóri í Klettaborg.
Ráðstefnustjóri er Ásgerður Guðnadóttir, aðstoðarleikskólastjóri í Fífuborg.