Forvarnardagurinn verður haldinn í öllum grunnskólum landsins miðvikudaginn 1. október. Forseti Íslands og borgarstjóri tóku þátt í kynna átakið í Ölduselsskóla í morgun.
Nýtt myndband um forvarnir verður sýnt í öllum grunnskólum landsins þann 1. október þar sem lögð verður áhersla á þrjú meginskilaboð forvarnardagsins og felast í því að:
• unglingar sem verja í það minnsta klukkustund á dag með fjölskyldum sínum, eru síður líklegir til að hefja neyslu fíkniefna;
• ungmenni sem stunda íþróttir og annað skipulagt æskulýðsstarf falla mun síður fyrir fíkniefnum;
• því lengur sem ungmenni bíða með að hefja áfengisneyslu, þeim mun ólíklegra er að þau verði fíkniefnum að bráð.
Í ávarpi Ólafs Ragnars Grímssonar í Ölduselsskóla í morgun kom fram að rannsóknir á högum og líðan íslenskra ungmenna sýna að um 5% nemenda í 10. bekk í grunnskólum landsins hafa orðið ölvuð síðastliðna 30 daga frá því þau voru spurð. Þetta hlutfall er með því lægsta sem mælst hefur í slíkum rannsóknum meðal ungmenna í Evrópu og Bandaríkjunum. Þannig hefur tekist með samstilltu átaki og jákvæðum aðferðum að draga verulega úr neyslu íslenskra ungmenna frá árinu 1998 þegar hlutfall unglinga í 10.bekk sem sögðust hafa orðið ölvuð var nær 45%. Hlutfall unglinga sem reyktu hefur líka minnkað úr 23% í 3% og um 2% unglinga segjast hafa prófað hass, en á árinu 1998 var það 17%.
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri sagði að þessi árangur sýndi samtakamátt samfélagsins og sagði að hlutur foreldra væri mikilvægustur. Einnig hefði skipulagt íþrótta og tómstundastarf og jafningjafræðsla sannað gildi sitt í forvörnum. „Ég er bjartsýnn á framtíðina sagði borgarstjóri, við eigum í dag bestu og efnilegustu unglinga Íslandssögunnar.“
Á fréttamannafundinum þar sem forvarnardagurinn var kynntur voru þeir sem ávarp fluttu sammála um að nú þyrfti að beina kröftunum að framhaldsskólanum, en rannsóknir sýna að talsverð aukning verður á ölvunardrykkju unglinga á fyrsta ári í framhaldsskóla. Mikilvægt er að bregðast við þeirri þróun með vitundarvakningu meðal foreldra og froráðamanna ungmenna, aukinni þekkingu og stuðningi frá öllu samfélaginu.