Frístundaheimilið Draumaland við Austurbæjarskóla hefur fengið 250.000 króna styrk frá Landsbankanum til verkefnisins Blómin á þakinu, verklegrar kennslu í borgarbúskap.
Verkefnið miðar að því bjóða börnunum í Austurbæjarskóla upp á verklega kennslu í borgarbúskap; ræktun plantna og matjurta. Meðal markmiða er að efla þekkingu og skilning barnanna á sjálfbærni, umhverfisvernd, matvælalæsi, heilbrigði og skemmtanagildi garðyrkju. Sett verður upp gróðurhús og upphækkuð beð á skólalóðinni og mun frístundaheimilið hafa aðalumsjón með ræktuninni ásamt kennurum í Austurbæjarskóla. Börnin munu rækta sínar plöntur, matjurtir eða lítil tré undir handleiðslu starfsmanna. Þeim verður kennt að nýta það sem ræktað er til matargerðar, um nýtingu auðlinda og þeim lærdómi sem fylgir að viðhalda lífi í plöntum og jurtum.
Blómin á þakinu er frumkvöðlaverkefni sem þau Ragnheiður Axel deildastjóri barnasviðs Kamps og Gísli Ólafsson í Draumlandi hafa unnið hörðum höndum að síðastliðið ár. Þau er að sönnu ánægð með að fá þennan styrk sem gefur verkefninu byr undir báða vængi en áður hafði hverfasjóður Hlíða styrkt verkefnið. "Það segir okkur að fleiri hafa trú á þessu flotta verkefni".
Verkefnið á að efla, styrkja og auka þekkingu barna á:
• sjálfbærni
• umhverfisvitund
• matvælalæsi
• neytendavitund
• heilbrigði og heilnæmi
• borgarbúskap
• náttúrufræði
• Fjármála- og verðmætalæsi