Dansnámskeið, grillaðstaða og hjólabrettagarður - styrkir úr Heita pottinum
Mannlíf Menning og listir
Gleðin var mikil í Breiðholtslauginni þegar fjögur verkefni ungs fólks í Reykjavík hlutu styrk úr Heita Potti Hins Hússins. Heiti Potturinn er verkefnasjóður sem miðar að því að efla menningarlíf, hvetja ungt fólk til að koma skapandi hugmyndum í framkvæmd og að stuðla að jákvæðri ímynd hverfisins.
Þetta er í þriðja skipti sem úthlutað er úr pottinum og hafa mörg verkefnanna hlotið mikla athygli Breiðhyltinga sem og annarra.
Verkefnin sem hlutu styrk að þessu sinni voru dansnámskeið fyrir börn og unglinga og danskeppni að því loknu sem að Jun Rafael De Luna stendur fyrir, Þorbjörg Ósk Eggertsdóttir og Hrefna Lind Einarsdóttir munu rannsaka ímynd Breiðholts og vinna úr því myndbandsverk og ljósmyndir sem þær sýna í Gerðubergi, Sverri Örn Sverrisson og félagar ætla að halda áfram viðhaldi og endurbótum á hjólabrettagarði við Jafnasel og koma þar upp góðri grillaðstöðu, körfuboltaspjaldi og fleiru og loks munu Marteinn Sindri Jónsson, Ragnheiður Harpa Leifsdóttir og Kristian Ross vinna útvarpsþætti frá heimilum Breiðhyltinga þar sem að tónlist, leiklist, heimspeki, saga og frásagnir munu fléttast saman í lifandi heild fyrir áheyrendum Rásar 1.
Hægt er að fylgjast með verkefnum sem hlotið hafa styrk fyrr á árinu og í fyrra og einnig framvindu þessara verkefna. Við óskum styrkhöfum innilega til hamingju með styrkinn!