Dagur villtra blóma: gengið um Nauthólsvík

Mannlíf

""

Árlega er haldið upp á sameiginlegan dag villtra blóma á Norðurlöndum. Í Reykjavík verður gengið um Nauthólsvík.

Gangan hefst á þaki ylstrandarhússins sunnudaginn 15. júní  kl. 11. Plöntur verða greindar til tegunda, fjallað um fjölbreyttan gróður svæðisins og starfsemi Flóruvina kynnt. Gestir eru hvattir til að taka með sér flóruhandbækur og stækkunargler.

Um leiðsögn sjá þeir Hjörtur Þorbjörnsson, forstöðumaður Grasagarðsins, og Snorri Sigurðsson, verkefnastjóri Reykjavíkur iðandi af lífi. Boðið er upp á gönguna í samstarfi Grasagarðs Reykjavíkur, Reykjavíkur iðandi af lífi og Nauthólsvíkur.



Athugið að Flóruvinir standa fyrir plöntuskoðunarferðum víða um land þennan dag. Sjá: www.floraislands.is/Annad/blomdag.html 

Nánari upplýsingar um gönguna í Nauthólsvík veita Hjörtur Þorbjörnsson í síma 692-1645 og Snorri Sigurðsson í síma 411-8535